** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 862-9416 ** FASTMOS kynnir: Einbýlishús á einni hæð ásamt bílskúr við Árbakka 2 - Laugarbakka. Birt stærð eignar eru 203,9 m2, þar af er íbúðarhlutinn 157,9 m2 (byggingarár 1981) og bílskúr 46,0 m2 (Byggingarár 2000). Eignin skiptist í forstofu, gang/hol, stofu, borðstofu, eldhús með borðkrók, þvottahús, fimm svefnherbergi, baðherbergi, gestasalerni/geymslu og bílskúr. Stór gróinn garður með fánastöng framan við húsið.Nánari lýsing: Forstofa er með flísum á gólfi.
Gangur/hol er með parket á gólfi.
Stofa og borðstofa eru í opnu rými með góðri lofthæð og teppi á gólfi.
Eldhús eru með borðkrók og parketi á gólfi, hvít innrétting með góðu skápaplássi. Í innréttingu er eldavél. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu. Úr eldhúsi er innangengt inn í þvottahúsið.
Þvottahús er með innréttingu og flísum á gólfi. Úr þvottahúsi er útgengt út á lóð. Úr þvottahúsi er aðgengi upp á loft sem hefur verið nýtt sem geymsluloft.
Baðherbergi er með viðarinnréttingu, salerni, baðkari og sturtuklefa. Flísar á gólfi.
Svefnherbergi nr. 1 (hjónaherbergi) er rúmgott með parket á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi nr. 2 er með parket á gólfi.
Svefnherbergi nr. 3 er með parket á gólfi.
Svefnherbergi nr. 4 er með parket á gólfi.
Svefnherbergi nr. 5 er með dúk á gólfi.
Gestasalerni er óinnréttað og er nýtt sem geymsla í dag.
Bílskúr er rúmgóður með máluðu gólfi. Rafmagn, hiti og rennandi vatn. Mikil lofthæð og gluggar. Innkeyrsluhurð og inngönguhurð er á bílskúrnum.
Verð kr. 59.000.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.