Hallgerðargata 9, 105 Reykjavík (Austurbær)
110.000.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
101 m2
110.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
2
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2020
Brunabótamat
65.850.000
Fasteignamat
94.600.000

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 690-8040  - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 862-9416

FASTMOS kynnir: Glæsileg og vel skipulögð 101,2 m2, 3ja herbergja íbúð á jarðhæð í nýlegu lyftuhúsi við Hallgerðargötu 9 í Reykjavík.  Svalir með glæsilegu sjávarútsýni og hellulagður sérafnotareitur á lóð.
Eignin er skráð 101,2 m2 þar af íbúð 92,2 m2, geymsla 9,0 m2. Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, baðherbergi, gestasnyrtingu, forstofu, eldhús, stofu og borðstofu. Sérgeymsla í kjallara.
Vandaðar innréttingar og tæki.  Gólfhiti.  Gólfsíðir glugger. Vönduð loftræsting. Quarts steinn á borðum í eldhúsi og á baðherbergi. Aukin lofthæð er í íbúðinni.
Falleg íbúð við sjóinn miðsvæðis í borginni - stutt í stofnæðar og alla helstu verslun og þjónustu - fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði í næsta nágrenni.


Nánari lýsing:
Forstofuhol er með fataskápum og harðparketi á gólfi.
Eldhús/stofa/borðstofa er opnu björtu með harðparketi á gólfi. Í eldhúsi er falleg L-laga innrétting. Í innréttingu er innbyggður ísskápur, spanhelluborð, vifta og ofn. Úr stofu er gengið út á svalir með glæsilegu útsýni út á sjó.
Svefnherbergi nr 1 (Hjónaherbergi) er með fataskápum og harðparketi á gólfi. Úr hjónaherbergi er útgengt út á hellulagðann sérafnotarreit sem snýr út í garð.
Svefnherbergi nr. 2 er með harðparketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt með fallegri innréttingu, vegghengdu salerni, handklæðaofni og 'walk in' sturtu. Innrétting fyrir þvottavél og þurkara er á baðherbergi.
Gestasnyrting er inn af forstofu, flísalögð með innréttingu og vegghengdu salerni.
Sérgeymsla er í kjallara 9,0 m2.
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er í kjallara.

Bílastæði: Sameiginlegur bílakjallari er undir öllum reitnum. Bílastæði í bílakjallara í boði til leigu gegn gjaldi fyrir íbúa hússins. 

Verð 110.000.000 kr.



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.