Laxatunga 107, 270 Mosfellsbær
129.000.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
4 herb.
178 m2
129.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2017
Brunabótamat
87.900.000
Fasteignamat
111.700.000

** Hafðu samband og bókaðu skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Glæsilegt og vel skipulagt 178,4 m2 raðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr við Laxatungu 107 í Mosfellsbæ. Birt stærð eignarinnar er 178,4 m2, þar af raðhús 146,0 m2 og bílskúr 32,4 m2.
Húsið skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi. Geymsluloft er á tveimur stöðum. Á teikningu er fjórða svefnherbergið við hlið stofu en samkvæmt núverandi skipulagi hefur stofa verið stækkuð sem því nemur. Hægt væri að breyta í samræmi við teikningu og setja upp fjórða herbergið. Mikil lofthæð er í húsinu. Vinsæl staðsetning, stutt frá leikskóla, útivistarsvæðum gönguleiðum. Skóli, verslun og öll helsta þjónusta aðeins í nokkra mínútna akstursfjarlægð.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.


Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og góðum fataskáp. Innangengt er í bílskúr úr forstofu. 
Eldhús er í sama rými og stofa og forstofa, með harðparket á gólfi, fallegri hvítri háglans innréttingu með góðu skápaplássi og innbyggðri uppþvottavél. Í innréttingu er spanhelluborð, ofn og örbylgjuofn. Gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingu.
Stofa/borðstofa er björt og rúmgóð með harðparket á gólfi. Útgengt er á timburverönd úr stofu.
Baðherbergi 1 er rúmgott, flísalagt í hólf og gólf með dökkri innrétting, "walk-in" sturtu, fallegu baðkari, handklæðaofni, handlaug og vegghengdu salerni. Þvottaaðstaða er inni á baðherbergi með góðri innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Geymsluloft er yfir baðherberginu.
Svefnherbergi 1 (hjónasvíta) er rúmgóð og glæsileg með harðparket á gólfi og góðu fataherbergi. Úr fataherbergi er innangengt í sér baðherbergi. Útgengt er á timburverönd úr hjónasvítu. Geymsluloft er yfir fataherbergi og baðherbergi.
Baðherbergi 2 er inn af hjónasvítu, flísalagt í hólf og gólf með dökkri innréttingu, sturtu, handklæðaofni, handlaug og upphengdu salerni.
Svefnherbergi 2 er rúmgott með harðparket á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 3 er rúmgott með harðparket á gólfi og fataskáp.
Bílskúr er rúmgóður með mikilli lofthæð. Búið er að setja upp gott geymsluloft.

Bílaplan er steypt og með hitalögnum. Stór og falleg timburverönd með skjólgirðingu er aftan við hús og snýr til suðurs.


Verð kr. 129.000.000,- 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.