Barrholt 24, 270 Mosfellsbær
122.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
6 herb.
200 m2
122.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1977
Brunabótamat
93.700.000
Fasteignamat
116.100.000

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Fallegt og vel skipulagt 200,6 m2 einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr við Barrholt 24. Birt stærð eignar eru 200,6 m2, þar af er íbúð 140,0 m2, garðskáli 25,6 m2 og bílskúr 35,0 m2. Húsið skiptist í forstofu, stofu og borðstofu, eldhús, baðherbergi, gestasalerni, fimm svefnherbergi, þvottahús, garðskála og bílskúr. Góð lokuð timburverönd er sunnan við húsið með litlu garðhýsi. Úr garðskála er gengið út á steypta verönd með heitum potti. Húsið er vel staðsett í vinsælu og grónu hverfi í Mosfellsbæ, stutt frá skóla, leikskóla, verslun og allri helstu þjónustu. 

Endurbætur á húsinu samkvæmt upplýsingum seljenda: Skipt var um pappa og járn á þaki 2019. Búið að setja upp varmaskipti fyrir neysluvatn og skipa um neysluvatnslagnir að hluta.

Náranari lýsing: 
Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp. Gólfhiti í gólfi.
Stofa og borðstofa eru með parket á gólfi. Útgengt er á timburverönd úr stofu.
Elhús og borðkrókur eru með flísum á gólfi, hvítri innréttingu, bakarofni, örbylgjuofni, helluborði og háfi. Gert er ráð fyrir uppþvottavél og tvöföldum ísskáp í innréttingu. Úr eldhúsi er útgengt í garðskála.
Búr herbergi er inn af eldhúsi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með góðri innréttingu, handlaug, vegghengdu salerni og sturtuklefa. Gólfhiti er í gólfi.
Svefnherbergi nr. 1 (hjónaherbergi) er rúmgott með parket á gólfi og góðum fataskápum.
Svefnherbergi nr. 2 er með parket á gólfi.
Svefnherbergi nr. 3 er með parket á gólfi.
Svefnherbergi nr. 4 er inn af eldhúsi með parket á gólfi. Breyting frá teikningu þar sem borðstofa er í rýminu.
Svefnherbergi nr. 5 er inn af forstofu með flísum á gólfi og gólfhita.
Gangur/hol er með parket á gólfi.
Gestasalerni er með vegghengdu salerni og handlaug.
Þvottahús er flísalag með borði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Innangengt í bílskúr úr þvottahúsi.
Garðskáli er með flísum á gólfi. Rennihurð út á steypta verönd með heitum potti.
Bílskúr er rúmgóður með máluðu gólfi.

Bílaplan er hellulagt og rúmgott, snjóbræðala er í bílaplani. Afgirt timburverönd er sunnan við húsið með litlu garðhýsi.

Verð kr. 122.900.000,- 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.