Hólastekkur 2, 109 Reykjavík
118.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á tveimur hæðum
6 herb.
198 m2
118.900.000
Stofur
3
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1969
Brunabótamat
88.050.000
Fasteignamat
100.200.000

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 862-9416 **
 
FASTMOS kynnir: 198 m2 einbýlishús á tveimur hæðum með bílskúr við Hólastekk 2 í Reykjavík.
 Mjög fallegt útsýni er frá húsinu.
Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi (búið er að sameina tvö barnaherbergi í eitt stórt), tvö baðherbergi, þvottahús, anddyri, forstofu, eldhús, stofu, borðstofu og bílskúr. Falleg skjólgóð lóð með miklum gróðri og verönd.

Eignin er skáð 198 m2, þar af íbúðarhlutinn 172,8 m2 og bílskúr 25,2 m2. 

Endurbætur samkvæmt upplýsingum frá eiganda. 2012 - 2013 var skipt um allt gler í húsinu og allir ofnar í húsinu endurnýjaðir. Árið 2012 var skipt um þakjárn og pappa á þaki. Árið 2023 var húsið háþrýstiþvegið og málað með Steinvara. Gluggar, hurðar og þakkantur yfirfarið og málað með Kjörvara.  

Stutt í alla helstu þjónustu og skóla. Göngufæri við Elliðaárdalinn.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.


Efri hæð:
Anddyri er með fatahengi og dúk á gólfi.
Stofa og borðstofa er með parketi á gólf og viðarþiljum í lofti.
Eldhús er með náttúrukork á gólfi og upprunalegri U-laga viðarinnréttingu. Góður borðkrókur er í eldhúsi.
Þvottahús er með stórum glugga, geymslulofti og máluðu gólfi.
Hjónaherbergi er með fataskápum, parketi á gólfi og viðarþiljum í lofti.
2 svefnherbergi eru með parketi á gólfi og viðarþiljum í lofti.  Búið er að sameina þessi herbergi í eitt og er það notað í dag sem sjónvarpsherbergi.
Baðherbergi er með náttúrukork á gólfi og flísum á veggjum, baðkari, gólfsalerni og innréttingu með niðurfelldri handlaug. Gluggi er á baðherbergi.
Hol/efri pallur er með parketi á gólfi. Þaðan er gengið út á svalir í vesturátt með glæsilegau útsýni.

Neðri hæð:
Fostofugangur 
er með teppi á gólfi.
Svefnherbergi með teppi á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, sturtuklefa, gólfsalerni og vegghengdri handlaug. Gluggi er á baðherbergi.
Bílskúr er með máluðu gólfi og hillum. Rafmagnsopnun á innkeyrsluhurð.

Verð kr. 118.900.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.