Laxatunga 66, 270 Mosfellsbær
107.500.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
3 herb.
135 m2
107.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2016
Brunabótamat
68.830.000
Fasteignamat
92.500.000

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 690-8040  - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir:  Fallegt og vel skipulagt 135,1 m2 raðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr við Laxatungu 66 í Mosfellsbæ. Stór afgirt timburverönd í suðurátt með heitum potti. Steypt bílaplan er fyrir framan húsið.
Birt stærð eignarinnar er 135,1 m2, þar af raðhús 110,1 m2 og bílskúr 25 m2.
Húsið skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, gluggalaust herbergi, baðherbergi/þvottaherbergi, eldhús, stofu, borðstofu og bílskúr, Geymsluloft er í bílskúr. Settur var upp milliveggur í bílskur og búið til gluggalaust herbergi, hægt er að taka niður vegginn og nýta þá bílskúrinn sem bílskúr aftur.
Mjög fallegar sérsmíðaðar innréttingar og gólfefni. Háar innihurðar ( ca. 2,70 m) Mikil lofthæð er í húsinu og gott skipulag.
Vinsæl staðsetning, stutt frá leikskóla, útivistarsvæðum gönguleiðum. Skóli, verslun og öll helsta þjónusta aðeins í nokkra mínútna akstursfjarlægð.

Smelltu hér til að fá sent söluyfirlit strax

Nánari lýsing:

Forstofa er með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Eldhús er í sama rými og stofa og forstofa, með harðparket á gólfi. Í eldhúsi er falleg L-laga innréttingu. Í innréttingu er innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél, spanhelluborð og bakaraofn. 
Stofa/borðstofa er björt og rúmgóð með harðparket á gólfi. Útgengt er á timburverönd úr stofu.
Baðherbergi/þvottaherbergi er rúmgott, flísalagt í hólf og gólf með fallegri innréttingu, "walk-in" sturtu, handklæðaofni, vegghengdu salerni. Þvottaaðstaða er inni á baðherbergi með góðri innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Innréttingunni er lokað með hurðum. 
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er með fataskápum og harðparket á gólfi.
Svefnherbergi 2 er með fataskápum og harðparketi á gólfi.
herbergi 3 (gluggalaust herbergi) er með teppi á gólfi.
Bílskúr er með mikilli lofthæð. Búið er að setja upp gott geymsluloft.Innrétting er í bílskúr og epoxý á gólfi. Bílskúrinn skiptist í dag í geymslurými og gluggalaust herbergi.

Verð kr. 107.500.000,- 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.