**Opið hús þriðjudaginn 30. apríl frá kl. 17:30 til 18:00 **
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Akurholt 15, Mosfellsbæ. Um er að ræða stórt og glæsilegt einbýlishús með tveimur íbúðum og tvöföldum bílskúr, alls 391,8 fm., á glæsilegri 1.032 fm. lóð á þessum rólega og veðursæla stað. Aðalíbúðin er á efri hæðinni 152 fm., bílskúrinn er 49,9 fm. og neðri hæðin sem er að hluta niðurgrafiin er 189,9 fm. Þar er í dag stór aukaíbúð og miklir möguleikar felast í öllu því plássi sem þar er til viðbótar. Gott hellulagt bílaplan með hitalögn er fyrir framan húsið. Einnig er stórt malbikað bílaplan á vesturhlið lóðarinnar.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.Efri hæð: Komið er á dúklagða
forstofu með stórum fataskáp og þaðan er aðgengi að geymslulofti.
Hol, borðstofa og sjónvarpsstofa eru samliggjandi, parketlagðar, útgangur á svalir úr borðstofu og af þeim á
u.þ.b. 60 fm. sólpall til suðurs og vesturs.
Eldhúsið er korklagt með eldri fulningarinnréttingu, flísum á milli skápa, borðkrók og tveimur gluggum. Innaf eldhúsinu er
búr með innréttingu og hillum.
Arinstofa er parketlögð með útgangi á flísalagðar yfirgyggðar svalir. Svefnherbergjagangurinn er parketlagður. Af honum eru þrjú
svefnherbergi með dúk á gólfum. Skápar í hjónaherberginu.
Baðherbergið er flísalagt með baðkari/sturtu, innréttingu og þremur gluggum. Teppalagður stigi á neðri hæð er úr holinu.
Neðri hæð: Forstofa með flísum og fatahengi. Dúklögð
snyrting með glugga. Parketlagt hol og stigi úr því á efri hæð. Stórt flísalagt
þvottahús með sturtu. Innaf því er rúmgóð
geymsla. Mjög stórt flísalagt
herbergi/bókastofa (28 fm - möguleg stúdíóíbúð). Af holinu er gengið inn í 4ra herbergja íbúð. Samliggjandi
stofa og eldhús með útgangi í garð. Létt innrétting í eldhúsi. Flísalagt
baðherbergi við hlið eldhúss, sturta, innrétting og gluggi. Fjögur
herbergi með plastparketi á gólfi, þar af tvö þeirra u.þ.b. 18 fm. hvort. Geymsla innaf herbergjagangi. Undir svölum/sólstofu efri hæðar er stór geymsla með sérinngangi að utan.
Bílskúrinn er tvöfaldur, með vatni, hita rafmagni, gluggum og hurðaropnurum. Hleðslustöð í bílskúr. Stór suður og vestur sólverönd og stór lóð til suðurs og vesturs. Álklæðning á þaki eignarinnar.
Eignin er innréttuð á vandaðan hátt, en að miklu leyti í upprunalegu ástandi hið innra og komið er að endurnýjun tréverks að hluta, t.a.m. í sólstofu. Mikil tækifæri felast í standsetningu eignarinnar og mögulega endurskipulagningu.
Vinsælt hverfi í Mosfellsbæ, veðursæld er mikil og stutt í skóla, leikskóla, verlsun og alla helstu þjónustu.
Verð kr. 189.000.000,- Nánari upplýsingar veitir Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali í síma 698-8555 eða [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.