Bugðufljót 17B, 270 Mosfellsbær
29.900.000 Kr.
Atvinnuhús
0 herb.
63 m2
29.900.000
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
0
Brunabótamat
0
Fasteignamat
1.325.000

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Nýtt og vandað 63,8 m2 geymsluhúsnæði við Bugðufljót 17B 01-07 sem er að rísa á stórri lóð við Bugðufljót 17 á Tungumelum í Mosfellsbæ. Húsið er reist úr forsteyptum einingum frá BM Vallá. Gólfhiti. Gönguhurð og 3x3m innkeyrsluhurð með rafmagnsopnun eru á hverju bili. 2 bílastæði fyrir farman innkeyrsluhurð fylgja hverju bili. Eignin afhendist við kaupsamning fullbúin skv. skilalýsingu seljanda (byggingarstig 4).

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

Skilalýsing byggingaraðila vegna Bugðufljót 17B:
Útveggjaeiningar eru frá Smellinn samlokueiningar með VÖLUN að utanverðu, veðurkápa 7 sm, einangrun 10 sm og burðarveggur 15 sm.
Allir veggir og loft er steypt.
Gólf verða vélslípuð og með gólfhita. Epoxy málning á gólfi.
Húsin verða fullfrágengin að utan, bæði þak og veggir ásamt þakrennum og niðurföllum.
Bílaplan verður fullfrágengið malbikuð með niðurföllum, olíuskilju og sorpaðstöðu. Hiti í bílaplani (4m út frá hurð).
Tvö bílastæði fylgja hverju bili og hægt að kaupa fleiri.
Útiljós eru yfir innkeyrsluhurðum sem lýsa upp bílaplan.
Sér inntak fyrir heitt vatn og rafmagn í hvert bil.
Rafmagnstafla ásamt mæli og höfuðöryggi lekaliða) verður tengt í töflukassa. Gert er ráð fyrir 3ja fasa rafmagni í hverju bili.
Heitt- og kaltvatn verður tengt við mælagrind í hverju bili. Mælar verða komnir í öll bil.
Gönguhurðir og gluggar í hverju bili sem og innkeyrsluhurðir með rafmagnsopnun 3X3m.
Frárennslislagnir verða PVC-U eða sambærilegt og verða tvö niðurföll í hverju bili.
Veggir og loft verða málaðir.
Ljós verða í lofti og tenglar á vegg.
Bilin eru geymsluhúsnæði og afhendast á byggingarstigi 7.
Ákvílandi er á eigninni vsk kvöð og miðast söluverð við að kaupandi yfirtaki kvöðina.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem verður 0,3% af endanlegu brunabótamati.



Verð kr. 29.900.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.