Starengi 12, 112 Reykjavík (Grafarvogur)
67.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
4 herb.
100 m2
67.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1995
Brunabótamat
43.500.000
Fasteignamat
57.650.000

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - 698-8555 eða [email protected] - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 6908040 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Rúmgóð og björt 100,0 m2, 4ra herbergja endaíbúð á 2. hæð, í fallegu fjölbýli við Starengi 12 í Grafarvogi.  Eignin skiptist í forstofu, gang, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, stofu og eldhús með góðum borðkróki. Frá stofu er útgengt á rúmgóðar svalir til suðvesturs. Sérgeymsla 2,0 m2 er í sameign. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Fallegur sameiginlegur garður með leiktækjum fyrir börn. Stutt er í leik- og grunnskóla, íþrótta- og afþreyingarmiðstöð í Egilshöll, verslanir og þjónustu í Spönginni, golfvöll við Korpúlfsstaði og falleg útivistarsvæði með strandlengjunni.

Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Gangur er með parketi á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með parketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi nr. 3 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er með dúk á gólfi og flísum á veggjum að hluta. Hvít innrétting, salerni og baðkar með sturtuaðstöðu.
Þvottaherbergi er með dúk á gólfi, handlaug og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Gluggi er í þvottaherbergi.
Stofa er í björtu opnu rými með parketi á gólfi. Útgengt á svalir með útsýni til suðvesturs.
Eldhús er með parketi á gólfi og L-laga innréttingu 
Sérgeymsla 2,0 m2 er í sameign í kjallara Starengis 18. Ekki inni í skráðri fermetratölu eignarinnar.

Eigninni fylgir bílastæði á lóð.
Eigninni fylgir hlutdeild að hjóla- og vagnageymslu sem er í kjallara í Starengi 18.

Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2024 er 65.000.000 kr.

Verð kr. 67.900.000,- 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.