Litlikriki 2, 270 Mosfellsbær
69.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
105 m2
69.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2008
Brunabótamat
51.600.000
Fasteignamat
60.450.000

** Hafðu samband og bókaðu skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - 698-8555 eða [email protected] - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 690-8040 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög falleg og vel skipulögð 105,7 m2, 3ja herbergja íbúð á efstu hæð, í lyftuhúsi með miklu útsýni við Litlakrika 2 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 105,7 m2, þar af íbúð, 93,2, m2 og geymsla 12,5 m2.
Íbúðin skiptist í tvö svefnherbergi, hol, baðherbergi, þvottahús, stofu, borðstofu og eldhús. Sérgeymsla í kjallara. Góð staðsetning, stutt í verslun og þjónustu. Krikaskóli er í hverfinu og stutt er í íþróttasvæðið að Varmá.


Nánari lýsing:
Forstofa og hol eru með parketi á gólfi og fataskáp.
Hjónaherbergi er rúmgott með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Svefnherbergi nr 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með góðri innréttingu, vegghengdu salerni, baðkari með sturtu aðstöðu og handklæðaofni.
Þvottaherbergi er flísalagt. Fataskápur og flísar á gólfi.
Stofa og borðstofa er í björtu opnu rými með parketi á gólfi. Úr stofu er útgengt á svalir í austur með fallegu útsýni.
Eldhús er með flísum á gólfi og fallegri innréttingu með blástursofni, keramikhelluborði og háfi. Ísskápur og uppþvottavél fylgir.
Sérgeymsla er í sameign í kjallara, 12,5 m2.

Eigninni fylgir hlutdeild að hjóla- og vagnageymslu sem er á jarðhæð.

Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2024 er 67.950.000 kr.

Verð kr. 69.900.000,- 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.