Fálkahöfði 2, 270 Mosfellsbær
75.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
4 herb.
123 m2
75.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1997
Brunabótamat
52.300.000
Fasteignamat
70.450.000

** Hafðu samband og bókaðu skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 690-8040 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 123,1 m2, 4 herbergja íbúð með fallegu útsýni á 2. hæð, með sér inngangi af opnum svalagangi, við Fálkahöfða 2 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 123,1 m2, þar af íbúð 117,3 m2 og geymsla 5,8 m2. Eignin getur verið laus til afhendingar við kaupsamning. Tvær hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla eru á sameiginlegu bílastæði fyrir húsið.
Eignin skiptist forstofu, hol, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og þvottahús. Sérgeymsla í sameign á jarðhæð  Frábær staðsetning rétt við grunn- og leiksskóla, sundlaug, golfvöll og fallegar gönguleiðir eru í næsta nágrenni.


Skv. upplýsingum frá húsfélaginu var húsið málað sumarið 2022.

Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskápum.
Hol er rúmgott með parketi á gólfi.
Stofa er björt með parketi á gólfi. Úr stofunni er gengið út á svalir í suðvesturs með fallegu útsýni. 
Eldhús er flísalagt með hvítri innréttingu og borðkrók við útbyggðum glugga með fallegu útsýni til norðausturs. Í innréttingu er ofn, helluborð og vifta.
Hjónaherbergi er rúmgott með parketi á gólfi og fataskápum.
Herbergi 2 er með parketi á gólfi og fataskáp. 
Herbergi 3 er rúmgott með parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með hvítri innréttingu og handlaug, baðkar, sturtuklefa og handklæðaofni.
Þvottaherbergi er inn af eldhúsi með innréttingu og opnanlegum glugga. Gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Sérgeymsla er á jarðhæð, 5,8 m2.
 
Hlutdeild að hjóla- og vagnageymslu á jarðhæð fylgir eigninni.
 
Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2024 er 79.600.000 kr.

Verð kr. 75.900.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.