Gerplustræti 18, 270 Mosfellsbær
54.500.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
2 herb.
67 m2
54.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2015
Brunabótamat
33.650.000
Fasteignamat
48.450.000

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - 698-8555 eða [email protected] - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 6908040 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 67,1 m2, 2ja herbergja íbúð með sérinngangi af svalagangi á efstu hæð í fjölbýlishúsi við Gerplustræti 18 í Mosfellsbæ. Stórar svalir í suðurátt (ca. 15 m2). Eignin er skráð 67,1 m2, þar af íbúð, 61,4 m2 og geymsla 5,7 m2. Íbúðin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi/þvottaherbergi. Sérgeymsla á jarðhæð. Frábær staðsetning rétt við Helgafellsskóla. Stutt í strætóstoppistöð. Stutt í fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði. Húsið er hannað og teiknað Teiknistofu Ingimundar Sveinssonar. Byggingaraðli er Byggingarfélagið Bakki ehf. 

Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Stofa er í björtu opnu rými með harðparketi á gólfi. Útgengt er úr stofu á stórar svalir til suðurs.
Eldhús er með harðparketi á gólfi og L-laga hvít innréttingu með blástursofni, helluborði og viftu. Gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu
Hjónaherbergi er rúmgott með parketi á gólfi og góðum fataskápum.
Baðherbergi/þvottaherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Falleg baðinnrétting, handklæðaofn, vegghengt salerni og sturta með glerskilrúmi. Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara og opnanlegur gluggi.
Sérgeymsla á jarðhæð fylgir íbúðinni, 5,7 m2.

Eigninni fylgir hlutdeild í sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu sem er á jarðhæð.

Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2024 er 53.050.000 kr.

Verð kr. 54.500.000,- 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.