** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Laust strax - Theodór Emil Karlsson, aðstoðarmaður fasteignasala - [email protected] eða 6908040 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] **Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: 182,5 m2 raðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr við Þrastarhöfða 25 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 182,5m2, þar af raðhús 158,2 m2 og bílskúr 24,3 m2.
Eignin skiptist í: Jarðhæð: Forstofa, gestasnyrting, herbergi, eldhús, stofa og bílskúr. Efri hæð: Þrjú svefnherbergi, sjónvarpshol, þvottahús og baðherbergi.
Svalir og suðvesturgarður með timburverönd og stórt steypt bílaplan. Bakgaður er með steyptri verönd og geymsluskúr.
Frábær staðsetning. Stutt í leikskóla, grunnskóla, sundlaug/heilsurækt og golfvöll. Neðri hæð:Forstofa er með fataskáp og flísum á gólfi. Úr forstofu er innangengt inn í bílskúrinn.
Gestasnyrting er með flísum á gólfi.
Eldhús, stofa og borðstofa er í björtu opnu rými með flísum á gólfi.
Í eldhúsi er L-laga innrétting með eyju. Í innréttingu er ofn og helluborð. Gert er ráð fyrir uppþvottavél og tvöföldum ísskáp í innréttingu. Úr eldhúsi er gengið út í bakgarð með steyptri verönd og geymsluskúr. Úr stofu er gengið út á timburverönd og út á bílaplan fyrir framan hús.
Herbergi 1 er með plastparketi á gólfi.
Bílskúr er með máluðu gólfi. Innangengt er í bílskúrinn úr forstofu.
Efri hæð:
Gangur er með plastparketi á gólfi. Af gangi er gengið út á svalir í suðurátt með fallegu útsýni.
Sjónvarpshol er með plastparketi á gólfi.
Herbergi 2 er með fataskáp og plastparketi á gólfi.
Herbergi 3 er með fataskáp og plastparketi á gólfi.
Herbergi 4 er með fataskáp og plastparketi á gólfi.
Þvottaherbergi er flísalagt og með innréttingu. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara. Hillur og snúrur.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, og með innréttingu, baðkari og sturtu.
Verð kr. 124.900.000,-Fyrir afhendingu verður búið að klæða geymsluskúr í bakgarði.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.