Asparlundur 7, 270 Mosfellsbær
149.900.000 Kr.
Einbýli
8 herb.
252 m2
149.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
6
Baðherbergi
5
Inngangur
Sér
Byggingaár
2007
Brunabótamat
99.320.000
Fasteignamat
120.900.000

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, aðstoðarmaður fasteignasala - [email protected] eða 6908040 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Fallegt og rúmgott 207,4 m2, einbýlishús með innbyggðum bílskúr (í dag nýttur sem auka íbúð) við Asparlund 7 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 207,4 m2, þar af íbúð 182,2 m2 og bílskúr 25,2 m2. Einnig er búið að útbúa rými í risi ca. 30 m2 sem er ekki í fermetratölu eignarinnar. Í garðinum er einnig 15 m2 fulleinangrað smáhýsi. 
Eignin skiptist í dag í 6 svefnherbergi, stofu. borðstofu, eldhús, 5 baðherbergi þvottahús, forstofu, geymslu, hæð og bílskúr. Búið er að breyta bílskúr í auka íbúð sem býður upp á leigutekjur. Einnig er búið er að útbúa herbergi og baðherbergi á efri hæð. Stór bakgarður í suðurátt með timburverönd og heitum potti.  Eignin stendur á 851,8 m2 eignarlóð. 


Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp
Stofa rúmgóð og með parketi á gólfi 
Borðstofa er björt og með flísum á gólfi. Úr borðstofu er gengið út á timburverönd með heitum potti og bakgarð í suðurátt.
Eldhús er með fallegri hvítri innréttingu og eyju. Í innréttingu er helluborð, háfur og ofn. Gott skápapláss og flísar á gólfi.
Herbergi Nr. 1 (hjónaherbergi) er rúmgott og með parketi á gólfi. Úr herbergi er gengið út á timburverönd. Innaf herbergi er fataherbergi og baðherbergi með með infrared gufu. Lagnir fyrir sturtu eru bakvið klefann.
Herbergi Nr. 2 er með parketi á gólfi og fataskáp
Herbergi Nr. 3 er með parketi á gólfi.
Herbergi Nr. 4 er með parketi á gólfi.
Baðherbergi Nr. 1 er innaf hjónaherbergi og er með salerni, innréttingu, handklæðaofn, skolvask og sturtuklefa.
Baðherbergi Nr. 2 er með salerni og skolvask.
Baðherbergi Nr. 3 er flísaagt í hólf og gólf. Innrétting, vegghengt salerni, handlæðaofn og baðkar með sturtu aðstöðu
Þvottahús er með innréttingu og góðu skápaplássi. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Geymsla er innaf þvottahúsi. Úr geymslu er gengið út a bílaplan og innangeng er í bílskúr úr geymslu.

Efri hæð (um 30 m2 og er ekki inni í fermetratölu):
Herbergi Nr. 5 er í opnu rými með parketi á gólfi. Innaf herbergi er fataherbergi.
Baðherbergi Nr. 4 er með salerni, skolvask og sturtu.

Bílskúr (auka íbúð) er 25,2 og er búið að útbúa auka íbúð. Íbúðin skiptist í forstofu, baðherbergi og alrými með vask og lítilli innréttingu. 
Garðhús er fulleinangrað og um 15 m2 sem eru ekki inni í fermetratölu hússins.

Verð kr. 149.900.000,-
 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.