Fasteignasala Mosfellsbæjar S: 586-8080 kynnir: Falleg og björt 166,1 m2, 5 herbergja íbúð með sérinngangi í fjórbýlishúsi við Ástu-Sólliljugötu 20, íbúð 01-01, í Mosfellsbæ. Eignin skiptist í fjögur svefnherbergi, baðherbergi/þvottaherbergi, forstofu, rúmgóða geymslu með glugga, eldhús, stofu og borðstofu. Mjög stutt er í nýjan skóla í hverfinu, Helgafellsskóla.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax
Komið er inn í forstofu með fataskápum og flísum á gólfi. Inn af forstofu er rúmgóð geymsla með glugga, góðu vinnuborði með vaski og plastparketi á gólfi. Úr forstofu er komið inn í hol með plastparketi á gólfi. Á hægri hönd er gengið inn í eldhús með L-laga innréttingu og eyju. Í innréttingu er span helluborð, vifta og blástursofn. Úr eldhúsi er opið inn í stofu og borðstofu með plastparketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á steypta verönd í suðvesturátt. Á vinstri hönd úr holi er komið inn á gang með plastparketi á gólfi. Á gangi er flísalagt baðherbergi/þvottaherbergi með innréttingu, baðkari, upphengdu salerni og flísalagðri sturtu. Hiti er í baðherbergisgólfi. Á ganginum eru einnig fjögur svefnherbergi með fataskápum og plastparketi á gólfi.
Verð kr. 63.9000.000,- Allar nánari upplýsingar fást hjá Fasteignasölu Mosfellsbæjar í síma 586 8080.