Fasteignasala Mosfellsbæjar S. 586-8080 kynnir: 12.499 m2 atvinnulóð við Bugðufljót 17 á Leirvogstungumelum í Mosfellsbæ. Flott staðsetning rétt við Vesturlandsveginn og Leirvogsá. Lóðin selst með gatnagerðargjöldum. Nýtingarhlutfall á lóðinni er 0,36. Fyrir liggja samþykktar teikningar af þremur húsum, samtals 4.480,9 m2. Byggingarleyfi er komið og því hægt að hefja framkvæmdir strax. Seljendur eru tilbúnir í allskonar samstarf og samvinnu varðandi uppbyggingu á lóðinni. Búið er að jarðvegsskipta að hluta.
Byggingareitur er afmarkaður með slitnum línum og að hluta með heildreginni línu, svokallaðri bindandi byggingarlínu. Allar byggingar og byggingarhlutar skulu vera innan byggingarreits þar með taldir hugsanlegir skjólveggir, skýli fyrir sorp eða varning o.s.fv. Byggingar skulu liggja að bindandi byggingarlínu á a.m.k. 10m kafla.
Verð kr. 99.000.000,- Allar nánari upplýsingar fást hjá Fasteignasölu Mosfellsbæjar í síma 586 8080.