Reykjabyggð 35, 270 Mosfellsbær
114.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
3 herb.
127 m2
114.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1988
Brunabótamat
55.300.000
Fasteignamat
91.600.000

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 690-8040  - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Fallegt og vel skipulagt 127,7 m2 einbýlishús á einni hæð með bílskúr við Reykjabyggð 35 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 127,7 m2, þar af einbýli 89,7 m2 og bílskúr 38,0 m2. Húsið skiptist í stofu, borðstofu, eldhús, 2 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, forstofu og bílskúr. Eignin stendur á fallegri 860 m2 eignarlóð með timburverönd. Stórt hellulagt bílaplan með snjóbræðslu. 

Skv. seljanda var baðherbergi og eldhús var endurnýjað árið 2017 og húsið málað að utan árið 2023. 
Húsið býður upp á ýmsa möguleika eins og að bæta við herbergjum eða útbúa auka íbúð í bílskúr. Gert er ráð fyrir 24,3 fm. gróðurhúsi í upphaflegum teikningum hússins.


Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og góðum fataskápum.
Herbergi 1 (hjónaherbergi) er rúmgott með parketi á gólfi og góðum skápum.
Herbergi 2 er rúmgott með parketi á gólfi og fataskáp.
Stofa og borðstofa eru í björtu og opnu rými með flísum á gólfi. Útgengt er úr stofu á timburverönd og garð í suðurátt. 
Eldhús er með flísum á gólfi og góðri eldhúsinnréttingu. Í innréttingu eru tveir bakaraofnar og helluborð. Gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp og uppþvottavél í innréttingu.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með fallegri innréttingu, handlaug, vegghengdu salerni og "walk in" sturtu.
Þvottahús er með flísum á gólfi og innréttingu. Gert er ráð fyrir þvottavél í vinnuhæð.
Bílskúr er skráður 38,0 m2. Innst í bílskúr er geymsla. Rafmagnshurðaropnari er á innkeyrsluhurð. Úr bílskúr er gengið útgengt í bakgarð.

Verð kr. 114.900.000,- 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.