Þrastarhöfði 5, 270 Mosfellsbær
79.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
4 herb.
109 m2
79.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2006
Brunabótamat
61.940.000
Fasteignamat
78.200.000

** Hafðu samband og bókaðu skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 862-9416 **
 
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 109,8 fm, 4ra herbergja endaíbúð með fallegu útsýni á 2. hæð, ásamt stæði í bílageymslu, í fallegu 3ja hæða fjölbýlishúsi við Þrastarhöfða 5, 270 Mosfellsbæ. Eignin er skráð 109,2 m2, þar af íbúð 100,2 m2 og geymsla 9,6 m2.
Íbúðin skiptist í stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, þvottahús, gang og forstofu. Sérgeymsla er í sameign inn af bílakjallara. Um er að ræða íbúð á vinsælum stað í Mosfellsbæ. Stutt er í Lágafellsskóla, leikskóla, Lágafellssundlaug og World Class, en auk þess er golfvöllur í næsta nágrenni. 

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.


Nánari lýsing: 
Forstofa er með fataskápum og flísum á gólfi.
Gangur er með parket á gólfi.
Stofa/borðstofa er björt með parket á gólfi og úr henni er gengt út á góðar svalir. 
Eldhús er inn af stofu, með parket á gólfi, bakaraofni, og L-laga eldhúsinnréttingu. 
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er rúmgott með parketi á gólfi og góðum fataskápum.
Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 3 er með parket á gólfi og fataskáp
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með sturtuklefa, vegghengdu salerni, handlau, innréttingu og handklæðaofni. 
Þvottahús er innan íbúðar, með flísum á gólfi.
Sérgeymsla, 9,6 m2, í sameign inn af bílakjallara. 

Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á jarðhæð.

Verð kr. 79.900.000



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.