Uglugata 32, 270 Mosfellsbær
93.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
4 herb.
128 m2
93.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2019
Brunabótamat
76.890.000
Fasteignamat
80.350.000

** Hafðu samband og bókaðu skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 690-8040  - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali [email protected] **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 128,9 m2, 4ra herbergja endaíbúð með á jarðhæð í 4ra íbúða fjölbýlishúsi við Uglugötu 32 í Mosfellsbæ ásamt TVEIMUR bílastæðum í bílakjallara. Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, tvær geymslur innan íbúðar (önnur nýtt sem sjónvarpshol), baðherbergi/þvottaherbergi, eldhús, stofu og borðstofu. Stór timburverönd í suðurátt. Fallegar innréttingar frá HTH. Stutt er í alla helstu þjónustu svo sem skóla, leikskóla, frístunda og íþróttaiðkun og ósnortna náttúru og göngu- og hjólastíga. 

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.


Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskáp og parketi á gólfi.
Eldhús er fallegri innrétting frá HTH. Í innréttingu er blástursofn, helluborð og háfur. Gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp og uppþvottavél í innréttingu. 
Stofa og borðstofa eru í opnu rými með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á stóra timburverönd í suðurátt.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 2 er með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 3 er með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi/þvottaherbergi er með innréttingu, sturtu, vegghengdu salerni og handklæðaofn. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Flísalagt í hólf og gólf.
Geymslur eru tvær og eru innan íbúðar. Önnur geymslan nýtt í dag sem sjónvarpsherbergi.

Íbúðinni fylgir tvö bílastæði í bílageymslu. Búið er að setja upp hleðslustöðvakerfi. Íbúðinni fylgir einnig hlutdeild að sameiginlegri vagna- og hjólageymsla í sameign.


Verð kr. 93.900.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.