Jörfagrund 32, 116 Reykjavík (Kjalarnes)
98.900.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
4 herb.
175 m2
98.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2000
Brunabótamat
89.400.000
Fasteignamat
84.950.000

** Hafðu samband og bókaðu skoðun -Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 690-8040 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Fallegt 175.8 m2 endaraðhús á einni hæð með bílskúr innst í botnlanga við Jörfagrund 32, 116 Reykjavík. Eignin er skráð 175,8 m2, þar af íbúð 144,9 m2 og bílskúr 30,9 m2. Eignin skiptist í forstofu, hol, bílskúr, stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi og þrjú rúmgóð svefnherbergi. Glæsilegt útsýni er frá húsinu. Timburverönd er fyrir framan og aftan hús. Bílaplan er hellulagt.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.


Nánari lýsing:
Forstofa með granít flísum á gólfi. Úr forstofu er innangengt í bílskúr.
Holið er parketlagt.
Stofa og borðstofa eru í opnu björtu rými með parketi á gólfi. Stórir gluggar og góð lofthæð. Úr stofu er gengið út á timburverönd í suðaustur átt.
Eldhús er með innréttingu og parketi á gólfi. Í innréttingu er ofn, helluborð, vifta og innbyggð uppþvottavél. Í innréttingu er gert ráð fyrir tvöföldum ísskáp. Granít borðplata.
Baðherbergið er rúmgott og er það flísalagt. Á baði er nuddbaðkar og 'walk in' sturta.
Hjónaherbergi er parketlagt og með góðum 'walk in' fataskáp.
Barnaherbergin eru tvö, bæði rúmgóð með parketi á gólfi.
Bílskúr með heitu og köldu vatni, 32 ampera rafmagn í bílskúr, tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Góðar hillur og geymsluloft yfir hluta bílskúrsins.

Húsið er steinsteypt og allir milliveggir hlaðnir. Allt húsið er að mestu leyti parketlagt fyrir utan votrými og forstofu.

Verð kr. 98.900.000,-
 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.