Vefarastræti 40, 270 Mosfellsbær
73.500.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
4 herb.
98 m2
73.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2018
Brunabótamat
64.650.000
Fasteignamat
71.550.000

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 690-8040  - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Björt, falleg og vel skipulögð 98,1 m2, 4ra herbergja endaíbúð á efstu hæð í lyftuhúsi ásamt stæði í lokaðri bílageymslu við Vefarastræti 40 í Mosfellsbæ. Mjög fallegt útsýni er frá eigninni.
Birt stærð eignarinnar er 98,1 m2, þar af íbúð 92,7 m2 og geymsla 5,4 m2. Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Bílastæði með hleðslustöð fyrir rafbíla í lokaðri bílageymslu fylgir eigninni. Svalir í suðausturátt með fallegu útsýni. Frábær staðsetning, rétt við Helgafellsskóla. Stutt í almenningssamgöngur og vinsæl útivistarsvæði.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.


Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.
Gangur er með parket á gólfi og fataskáp.
Eldhús og stofa eru í opnu rými með útgengi á 8,4 m2 svalir í suðausturátt með fallegu útsýni. Í eldhúsi er L-laga innrétting með viðaráferð á neðri skápum en efri skápar eru hvítmálaðir. Í innréttingu er innbyggð uppþvottavél, ofn, helluborð og háfur. Gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu. Borðplata er hvít og úr harðplasti. 
Svefnherbergi nr. 1 (hjónaherbergi) er rúmgott með parket á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi nr. 2 er með parket á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi nr. 3 er með parket á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi/þvottaherbergi er með flísum á gólfi, innréttingu, upphengdu salerni, handklæðaofni og "walk-in" sturtu auk tengi og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Hiti er í gólfi á baðherbergi. 
Sérgeymsla er í kjallara 5,4 m2
Bílastæði í lokaðri bílageymslu, merkt B01, fylgir eigninni.

Vagna- og hjólageymsla er í sameign í kjallara.

Verð kr. 73.500.000



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.