Uglugata 26, 270 Mosfellsbær
81.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
4 herb.
112 m2
81.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2017
Brunabótamat
62.300.000
Fasteignamat
73.650.000

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 690-8040  - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali [email protected] **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög falleg og vel skipulögð 112,2 m2, 4-5 herbergja endaíbúð með sérinngangi á 2. hæð í fjórbýlishúsi við Uglugötu 26 í Mosfellsbæ. Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, geymslu innan íbúðar (hægt að nota sem svefnherbergi), baðherbergi, þvottahús, eldhús, stofu og borðstofu. Rúmgóðar svalir í suðurátt. Falleg og björt íbúð með glugga á þrjá vegu í litlu fjölbýlishúsi. Fallegar innréttingar frá Parka. Stutt er í alla helstu þjónustu svo sem skóla, leikskóla, frístunda og íþróttaiðkun og ósnortna náttúru og göngu- og hjólastíga. 

Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskáp og vínylparket á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskápum og vínylparketi á gólfi. Gluggar á tvo vegu.
Svefnherbergi nr. 2 er með fataskáp og vínylparketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 3 er með fataskáp og vínylparketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt og með innréttingu, sturtu, vegghengdu salerni og handklæðaofn.
Þvottahús er með flísum á gólfi. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.
Eldhús er fallegri innrétting og eyju frá Parka. Í innréttingu er innbyggð uppþvottavél, blástursofn, helluborð og háfur. Gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu. 
Stofa og borðstofa er í opnu rými með eldhúsi og vínylparketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á rúmgóðar svalir í suðurátt.
Geymsla er innan íbúðar. Gluggi er í geymslu og vínylparket á gólfi. Hægt að nota sem herbergi.

Íbúðinni fylgir hlutdeild að sameiginlegri vagna- og hjólageymsla á jarðhæð ásamt sameignilegri geymsluhillu. 

Verð kr. 81.900.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.