Desjamýri 7, 270 Mosfellsbær
22.900.000 Kr.
Atvinnuhús/ Lager - Iðnaðarhúsnæði
0 herb.
43 m2
22.900.000
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
2015
Brunabótamat
9.980.000
Fasteignamat
16.650.000

**Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali, [email protected] eða 690-8040 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali, [email protected] eða 698-8555 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: 43,5 m2 geymsluhúsnæði á afgirtu lokuðu svæði við Desjamýri 7 í Mosfellsbæ. Hámarks lofthæð 4,2 m og búið er að setja ca. 20 m2 geymsluloft. Epoxy-máling á gólfi. Einnig er búið að koma fyrir auka rafmagnstenglum fyrir þriggja fasa rafmagn. Engin vsk-kvöð er á eigninni. 


Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

Nánari upplýsingar:
Bílskúrshurð er 2,9 metrar á hæð og 2,8 metrar á breidd. Inngangshurð er við hlið bílskúrshurðar. Hámarks lofthæð 4,2 m. Innanmál rýmis eru 8,4 metrar á dýpt og 4,8 metrar á breidd. Einn vaskur er í rýminu. Allir veggir eru fyrst klæddir með krossvið, síðan gifslkæddir og svo málaðir. Einn ofn og eitt niðurfall er í bilinu. Hurð er yleiningahurð. Í þaki eru yleiningar og snýr hvít stálklæðning að lofti. Hiti og rafmagn sameiginlegt í öllum húsunum á svæðinu. Sameiginlegt salerni er á svæðinu. Allt útisvæði er malbikað og afgirt með netgirðingu. 

Verð kr. 22.900.000,- 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.