Háholt 4A, 270 Mosfellsbær
64.900.000 Kr.
Fjölbýli
3 herb.
94 m2
64.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2007
Brunabótamat
42.550.000
Fasteignamat
64.450.000

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 862-9416 **


Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Rúmgóð og vel skipulögð 94,9 m2, 3ja herbergja endaíbúð með sér inngangi af svalagangi á 2. hæð í þriggja hæða fjölbýlishúsi við Háholt 4A í miðbæ Mosfellsbæjar. Íbúðin skiptist í tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús/geymslu, forstofu, eldhús, stofu og borðstofu. Björt og vel skipulögð íbúð. Fallegar innréttingar. Rúmgóð svefnherbergi. Mikið skápapláss. Stórar svalir í vesturátt. Íbúðin er staðsett í hjarta Mosfellsbæjar og er örstutt í alla þjónustu, samgöngur og skóla.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax

Nánari lýsing:
Komið er inn í forstofu með forstofuskáp og flísum á gólfi.
Á vinstri hönd er rúmgott flísalagt þvottahús/geymsla með innréttingu og hillum. Gluggi er í þvottahúsi/geymslu.
Úr forstofu er komið inn í opið rými sem skiptist í eldhús, borðstofu og stofu með parketi á gólfi.
Gott eldhús með fallegri innréttingu. 
Björt og falleg stofa með stórum gluggum. Úr stofu er gengið út á stórar svalir í vesturátt.
Á hægri hönd úr forstofu er komið inn í rúmgott svefnherbergi með stórum fataskápum og parketi á gólfi.
Þar við hlið er flísalagt baðherbergi. Falleg innrétting og baðkar með sturtuaðstöðu. Gluggi er á baðherbergi.
Við hlið baðherbergis er hjónaherbergi með stórum fataskápum og parketi á gólfi. Úr hjónaherbergi er gengið út á svalir.

Íbúðinni fylgir hlutdeild í sameiginlegri geymslu með merkum hillum á jarðhæð. 


Verð kr. 64.900.000,- 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.