Vefarastræti 11, 270 Mosfellsbær
84.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
5 herb.
125 m2
84.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2017
Brunabótamat
75.270.000
Fasteignamat
84.050.000

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 862-9416 ** 

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Björt og vel skipulögð 125,5 m2, 5 herbergja endaíbúð í lyftuhúsi á efstu hæð ásamt bílastæði í bílageymslu. Eignin er skiptist í forstofu, borðstofu/stofu, 4 svefnherbergi, eldhús, baðherbergi, geymslu innan íbúðar og bílastæði í bílageymslu. Mikil lofthæð og gluggar í þrjár áttir sem gerir eignina skemmtilega og bjarta. Búið er að setja upp hleðslustöðvar á bílastæði og leggja rafmagn að bílastæði í bílakjallara. Dýrahald hefur verið leyft í húsinu. Frábær staðsetning rétt við grunn- og leiksskóla, Helgafellsskóla og fallegar gönguleiðir. Stutt í strætóstoppistöð. Fallegt útsýni. Eignin er laus til afhendingar fljótlega.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.


Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskáp og flísum á gólfi.
Stofa/borðstofa er björt og með parketi í gólfi. Úr stofu er gengið út á svalir í suðvesturátt með fallegu útsýni.
Eldhús er með innréttingum frá HTH. Í innréttingu er ofn, helluborð og vifta. Gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með fallegri innréttingu, vegghengdu salerni, handklæðaofni og sturtu. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum skápum og parketi á gólfi
Barnaherbergi eru þrjú, öll með skápum og parketi á gólfi.
Geymsla er innan íbúðar

Íbúðinni fylgir hlutdeild að sameignlegri hjóla- og vagnageymslu.


Verð kr. 84.900.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.