S: 586 8080

www.fastmos.is

Einar Páll Kjærnested

Löggiltur fasteignasali

Fálkahöfði, Mosfellsbær

  • Tegund: Fjölbýli
  • Stærð: 118 m2
  • Herbergi: 3
  • Stofur: 1
  • Svefnherbergi: 2
  • Baðherbergi: 1
  • Inngangur: Sér
  • Byggingaár: 1997
  • Lyfta: Nei
  • Fasteignamat: 20.800.000
  • Brunabótam: 19.050.000
  • Áhvílandi: 11.609.042
Verð: 24.900.000 kr.
Fasteignasala Mosfellsbæjar ehf kynnir: Björt 91 m2 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í 3ja hæða fjölbýli ásamt 27,6 m2 bílskúr við Fálkahöfða 2 í Mosfellsbæ.

Eignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi með sturtu og baðkari, þvottahús, eldhús og stofu. Íbúðinni fylgir sér geymsla á 1. hæð. Bílskúrinn er 27,6 m2. Falleg íbúð með fallegu útsýni á vinsælum stað í Mosfellsbæ.

Gengið er inn í íbúðina af opnum stigapalli. Komið er inn í flísalagða forstofu með stórum forstofuskáp spónlagður með mahony. Inn af forstofu er flísalagt þvottahús, með hillum. Úr forstofu er komið inn í opið rými með merbau parketi á gólfi. Á hægri hönd er eldhús með borðkrók en lítið hol á hægri hönd. Í eldhúsi er U-laga eldhúsinnrétting spónlögð með mahony og harðplastlögð borðplata, í innréttingu er hvítur blástursofn og keramik helluborð, einnig er djúpur búrskápur í eldhúsi. Úr holi er gengið inn á baðherbergi og svefnherbergin. Til vinstri í holi er baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, hvít baðinnrétting, baðkar og sturtuklefi. Við hlið baðherbergis er stórt hjónaherbergi með merbauparketi á gólfi og stórum fataskáp spónlögðum með mahony. Úr hjónaherbergi er gengið út á stórar svalir í suðvestur með miklu útsýni út á Faxaflóa og til Reykjavíkur. Á móti baðherbergi er barnaherbergi með merbau parketi á gólfi og fataskáp. Úr opna rýminu við forstofu er opið inn í stóra og bjarta stofu með merbauparketi á gólfi. Úr stofu er einnig gengið út á svalir í suðvestur. Íbúðinni fylgir 4,9 m2 sérgeymsla á 1. hæð, en auk þess er þar sameiginleg vagna- og hjólageymsla. Stór sameiginleg lóð er við húsið, sem er afgirt með hekki, bílaplan malbikað og gangstétt hellulögð. Íbúðinni fylgir 27,6 m2 bílskúr sem stendur við húsið. Húsið er á Vestursvæði Mosfellsbæjar og er stutt í nýjan skóla og leikskóla, auk þess sem golfvöllur Mosfellsbæjar er í 5 mín. göngufjarlægð.

Verð kr. 24.900.000,- Allar nánari upplýsingar fást hjá Fasteignasölu Mosfellsbæjar í síma 586 8080