S: 586 8080

www.fastmos.is

Einar Páll Kjærnested

Löggiltur fasteignasali

Hlíðartún, Mosfellsbær

  • Tegund: Hæð
  • Stærð: 136 m2
  • Herbergi: 4
  • Stofur: 1
  • Svefnherbergi: 3
  • Baðherbergi: 1
  • Inngangur: Sér
  • Byggingaár: 1959
  • Lyfta: Nei
  • Fasteignamat: 22.400.000
  • Brunabótam: 25.682.000
  • Áhvílandi: 11.482.492
Verð: 28.900.000 kr.
Fasteignasala Mosfellsbæjar ehf kynnir: 104,1 m2 neðri sérhæð ásamt 27,8 m2 bílskúr og 4,1 m2 geymslu við Hlíðartún í Mosfellsbæ.

Eignin skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, eldhús og stofu.

Gott bílaplan er fyrir framan húsið. Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi. Úr forstofu er komið inn á gang með plastparketi á gólfi. Á vinstri hönd er komið inn í bjart eldhús með góðum borðkrók og flísum á gólfi. Á hægri hönd er herbergi með plastparketi á gólfi sem er nú er nýtt sem barnaherbergi. Á hægri hönd úr gangi er komið inn í rúmgóða og bjarta stofu með plastparketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á verönd. Úr gangi á vinstri hönd er þvottahús með plássi fyrir þvottavél og þurrkara ásamt góðu hilluplássi og vaski. Við hlið þvottahússins er komið inn í baðherbergi . Baðherbergið er flísalagt, með baðkari og sturtu. Við enda gangsins er rúmgott svefnherbergi með plastparketi á gólfi og er nú nýtt sem unglingaherbergi . Á hægri hönd úr gangi er svo rúmgott hjónaherbergi með góðum skápum og parketi á gólfi. Rúmgóður bílskúr með rafmagni og heitu og köldu vatni er sérstæður á plani, yfir bílskúr er geymsluloft og við enda bílskúrs er geymsla sem er í dag nýtt fyrir frystiskáp, reiðhjól og ýmislegt tilfallandi. Í kringum húsið er 1265m2 gróin lóð með góðu leikplássi og matjurtagarði, undir tröppum að inngangi er lítir geymsla sem nýtt er í dag undir útidót.

Verð kr. 28.900.000,- Allar nánari upplýsingar fást hjá Fasteignasölu Mosfellsbæjar í síma 586 8080.