Reyrengi, Reykjavík (Grafarvogur)
- Tegund: Fjölbýli
- Stærð: 82 m2
- Herbergi: 3
- Stofur: 1
- Svefnherbergi: 2
- Baðherbergi: 1
- Inngangur: Sér
- Byggingaár: 1994
- Lyfta: Nei
- Fasteignamat: 16.600.000
- Brunabótam: 16.250.000
- Áhvílandi: 8.737.055
Íbúðin skiptist í forstofu, 2 rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi/þvottaherbergi, eldhús og stofu. Örstutt er í leik- og grunnskóla og er Borgarholtsskóli í göngufæri, Spöngin þjónustu- og verslunarmiðstöð og Egilshöll eru einnig stutt frá.
Komið er inn í forstofu með forstofuskáp og flísum á gólfi. Úr forstofu er komið inn í hol með parketi á gólfi. Á hægri hönd er flísalagt baðherbergi/þvottaherbergi með flísum á gólfi, innréttingu og baðkari. Tengi fyrir þvottavél. Þar við hlið er rúmgott hjónaherbergi með parketi á gólfi og fataskáp. Úr holi er komið inn í eldhús og stofu með parketi á gólfi. Í eldhúsi er falleg innrétting með blástursofni, helluborði og viftu. Úr stofu er gengið út á svalir. Á vinstri hönd úr stofu er gengið inn í rúmgott svefnherbergi með fataskáp og parketi á gólfi. Íbúðinni fylgir 4,8 m2 sér geymsla á 1. hæð ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Verð kr. 19.700.000 kr.- Allar nánari upplýsingar fást hjá Fasteignasölu Mosfellsbæjar í síma 586-8080.