Þrastarhöfði, Mosfellsbær
- Tegund: Einbýli
- Stærð: 240 m2
- Herbergi: 5
- Stofur: 1
- Svefnherbergi: 4
- Baðherbergi: 2
- Inngangur: Sér
- Byggingaár: 2006
- Lyfta: Nei
- Fasteignamat: 47.450.000
- Brunabótam: 0
- Áhvílandi: 55.000.000
Mjög fallegt 196,0 m2 einbýlishús á einni hæð ásamt 44,0 m2 rúmgóðum bílskúr á glæsilegri lóð. Húsið skiptist í stóra stofu/borðstofu, opið eldhús, stórt baðherbergi, þrjú rúmgóð barnaherbergi, stórt hjónaherbergi með sér baðherbergi, þvottahús og bílskúr. Lóðin er mjög snyrtileg með fallegri verönd.
Komið er inn í flísalagða forstofu með stórum forstofuskáp. Úr forstofu er komið inn í stórt og opið rýmið með mikilli lofthæð. Þar er gengið niður tvær tröppur í eldhús, borðstofuna og stofuna - stórar flísar eru gólfum. Í eldhúsi er glæsileg L-laga viðarinnrétting með eyju. Í innréttingu er stállitaður blástursofn í borðhæð, keramik helluborð og háfur. Einnig er gufuofn í innréttingu. Gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp og vínkæli í eldhúsinnréttingu. Á hægri hönd frá forstofu er stórt baðherbergi, með tveimur sturtum, baðkari og stórri baðinnréttingu með tveimur vöskum. Þar við hlið eru tvö góð barnaherbergi með fataskápum. Á vinstri hönd frá forstofu er gott barnaherbergi. Þar við hlið er gengið inn í hjónaherbergi með stórum fataskápum og inn af hjónaherbergi er sér baðherbergi með sturtu. Við hlið hjónaherbergis er þvottahús með góðri innréttingu, sérútgangur er úr þvottahúsi út á verönd. Úr þvottahúsi er innangengt í stóran og rúmgóðan flísalagðan bílskúr með góðu skápaplássi. Hvíttaður askur og flísar eru á gólfum. Askur er í innréttingum í eldhúsi, baði, forstofu og svefnherbergjum. Lóðin er er mjö falleg, hvítir stoðveggir og lýsing setja mikinn svip á lóðina. Þetta er sérlega fallegt hús, innahúshönnun er unnin af Hallgrími Friðgeirssyni, innanhússarkitekt. Mjög góð staðsetning, golfvöllur bæjarins er við enda götunnar og Lágafellsskóli, Lágafellssundlaug og World Class við hinn enda götunnar
Verð kr. 79.000.000,- Allar nánari upplýsingar fást hjá Fasteignasölu Mosfellsbæjar í síma 586 8080.